Grunnhugmynd
Ísland, sumarið 1942. Íslensk sveitakona sem talar enga ensku er plötuð til að selja bandarískum dátum kindurnar sínar, sem þeir skjóta svo í skotæfingu. Hún svarar með heiðinni bölvun og segir Bandaríkjaher stríð á hendur, á meðan fjölskyldan sundrast milli gamla heimsins og hins nýja.
Íslenskur titill: Kanaverk
- Lengd
- 18–20 mínútur
- Sögusvið
- Ísland, sumarið 1942
- Tegund
- Söguleg stríðsmynd
- Tónn
- Tragíkómísk satíra
- Tungumál
- Íslenska og enska
- Tökur
- Júlí 2027 · Austur- og Suðurland
Frá leikstjóra
Ísland var eitt fátækasta og afskekktasta land Evrópu þegar stríðið hófst. Það var Bandaríkjamaðurinn, meira en nokkur annar, sem þeytti okkur á hraðbrautina. Hann byggði flugvöllinn, lagði vegina, pumpaði peningum í hagkerfið og gjörbreytti, sem aukaverkun, hugarfari okkar, siðum og menningu. Nú alast strákar eins og ég, sem rekja mega ættir sínar til Egils Skallagrímssonar, upp í Hollywood-myndlíkingum og tala ensku auðveldar en sitt eigið móðurmál.
Gamla Ísland sögualdar dó í stríðinu, og úr því fæddist það Ísland sem við þekkjum í dag.
“OPUS AMERICANA wittily mixes historical fiction, gothic mystery, and youthful lust. … When this tale gets onscreen, audiences will zero in.”
Kynning á verkefninu
Sagan og persónurnar, kvikmyndamálið, prufutökurnar, handritið, tökustaðirnir og fjármögnunin. Kynningin er læst og ætluð samstarfsaðilum og fjármögnunaraðilum.
Í samstarfi við Stríðsárasafnið á Reyðarfirði og Menningarstofu Fjarðabyggðar
Valin á Nordic Short Film Pitch, Nordisk Panorama 2026
