Opus Americana

Stríðsmynd · Ísland, 1942

Kindur drepnar upp á gamnið.
Stríðsyfirlýsingar í formi heiðinna bölvana.
Menningarleg innrás í nafni hervarna.
Kynlíf, bíó, ljóð, mútur, lygar, hótanir, hengingar,
rangtúlkanir og afhausanir.

Velkomin á hernámsárin.

Grunnhugmynd

Ísland, sumarið 1942. Íslensk sveitakona sem talar enga ensku er plötuð til að selja bandarískum dátum kindurnar sínar, sem þeir skjóta svo í skotæfingu. Hún svarar með heiðinni bölvun og segir Bandaríkjaher stríð á hendur, á meðan fjölskyldan sundrast milli gamla heimsins og hins nýja.

Íslenskur titill: Kanaverk

Lengd
18–20 mínútur
Sögusvið
Ísland, sumarið 1942
Tegund
Söguleg stríðsmynd
Tónn
Tragíkómísk satíra
Tungumál
Íslenska og enska
Tökur
Júlí 2027 · Austur- og Suðurland

Frá leikstjóra

Ísland var eitt fátækasta og afskekktasta land Evrópu þegar stríðið hófst. Það var Bandaríkjamaðurinn, meira en nokkur annar, sem þeytti okkur á hraðbrautina. Hann byggði flugvöllinn, lagði vegina, pumpaði peningum í hagkerfið og gjörbreytti, sem aukaverkun, hugarfari okkar, siðum og menningu. Nú alast strákar eins og ég, sem rekja mega ættir sínar til Egils Skallagrímssonar, upp í Hollywood-myndlíkingum og tala ensku auðveldar en sitt eigið móðurmál.

Gamla Ísland sögualdar dó í stríðinu, og úr því fæddist það Ísland sem við þekkjum í dag.

Ólafur Árheim
“OPUS AMERICANA wittily mixes historical fiction, gothic mystery, and youthful lust. … When this tale gets onscreen, audiences will zero in.”
Joe Neumaier, kvikmyndagagnrýnandi á WOR-útvarpinu í New York og blaðamaður (Variety, The New York Times, The New York Daily News)

Kynning á verkefninu

Sagan og persónurnar, kvikmyndamálið, prufutökurnar, handritið, tökustaðirnir og fjármögnunin. Kynningin er læst og ætluð samstarfsaðilum og fjármögnunaraðilum.

Opna kynningu Lykilorð þarf til

Í samstarfi við Stríðsárasafnið á Reyðarfirði og Menningarstofu Fjarðabyggðar
Valin á Nordic Short Film Pitch, Nordisk Panorama 2026